Fyrsti Rannsóknarstofudagurinn
Ég var að koma af rannsóknarstofunni.
Þetta var fyrsti dagurinn, og mér líst bara nokkuð vel á... Ég byrjaði á að sitja á labbfundi, þar sem urðu líflegar umræður og spekúleringar. -Eitthvað sem ég átti ekki að venjast á labbinu sem ég var á fyrir jól. Svo var ég kynnt fyrir öllum á labbinu. Ég er meira að segja með þartilgerðann "stuðningsfulltrúa", en einn póstdokkanna á labbinu á að hjálpa mér að starta verkefninu mínu og ég á að leita til hans ef ég er í einhverjum vandræðum eða hef einhverjar spurningar.
Á morgun mæti ég svo og geri fyrstu tilraunina mína. Já, ég verð víst að horfast í augu við frekari músadráp, því ég þarf að einangra hvít blóðkorn úr músamilta. Svo þarf ég bara að meðhöndla frumurnar aðeins og bíða svo fram á þriðjudag, en þá held ég áfram og einangra RNA úr frumunum... (Vúps.. ég vona að minna vísindalega sinnaðir lesendur dagbókarinnar hafi ekki gersamlega dáið úr leiðindum núna.) Ég víl líka endilega hvetja þá sem hafa eitthvert vit á Real Time PCR að pósta góð ráð í kommentin hérna, eða bara senda mér þau í ímeili..
Nú er hins vegar maður að nafni Mörður Finnbogason að hvetja mig til þess að koma með sér niður í þvottahús, og svo ætla ég að fara í skólann að sækja einkunn nr.3 af 4. Óskið mér heilla...