Sunnudagur, 20 janúar, 2002
Könnunin Ef einhver vill bæta

Könnunin
Ef einhver vill bæta við kvikmyndum í könnunina, má sá og hinn sami koma með hugmyndir sem við getum bætt við.

Posted by Mordur Finnbogason at 11:45 EH
Dim Sum Við fórum ásamt

Dim Sum
Við fórum ásamt Josh, Melissu og Nate, vini þeirra í Dim Sum í dag. Dim sum fer þannig fram að við setjumst við borð í risastórum matsal og svo koma þjónar með ótrúlega margar tegundir að mat að borðinu okkar. Í hvert sinn sem þjónn kemur með mat segjum við til um hvort við viljum hann eða ekki. Sjaldnast er nokkur leið að vita hvað er verið að koma með en sérfræðingurinn okkar við borðið, Nate, vissi oft hvað var verið að bjóða okkur. Oftast var þetta eitthvað jukk pakkað inn í eitthvað annað seigt og skrítið. Hmmm. Hljómar kannski ekki mjög vel en markt af þessu skrítna jukki var bara helvíti gott á meðan annað var ekki eins gott. En þetta var bara mjög skemmtilegt, og ódýrt. Þegar við settumst á borðið okkar var settur reikningur á það, svo í hvert skipti sem þjónn lét okkur hafa einvhern rétt, skrifaði hann eitthvert óskiljanlegt tákn á reikninginn. Þegar kom að því að borga leit manneskjan við kassann á reikninginn og án þess að reikna nokkuð út né hugsa sig um lengi fengum við verðið. Eftir þessa skemmtilegu reynslu kíktum við á nýja verslun Prada á horninu á Broadway og Prince street. Þessi verslun var eiginlega bara óskiljanlegt furðuvirki með engum með óskiljanlegum verðum. Dæmi; Melissa fann trefill sem kostaði $1000. Við áttuðum okkur á því að það var enginn sölukassi í versluninni og fyrst að við gátum ekki fundið hann værum við líklega ekki nógu rík til að versla í þessari ágætu búð.

Posted by Mordur Finnbogason at 11:25 EH