Þriðjudagur, 22 janúar, 2002
Perl fyrir byrjendur Ég fór

Perl fyrir byrjendur
Ég fór í fyrsta tímann minn í Computational Genomics í dag. Það var ansi áhugavert. Stofan ein og sér var áhugaverð. Hún var á stærð við stofurnar á neðstu hæðinni í VR2, en það sem var óvenjulegt var að það voru 9 sjónvarpstæki inn í stofunni. Í stofunni var líka myndavél sem beindist alltaf að kennaranum, samg hvar hún stóð, og svo birtust Power Point skyggnurnar hennar á skjánum. Frekar fríkað. Hún hlýtur að hafa verið með einhvers konar sendi á sér fyrst að myndavélin vissi alltaf hvar hún væri.

Ég fékk satt að segja pínu sjokk þegar tíminn byrjaði, því að okkur var sagt að við yrðum að hafa "solid" undirstöðu í forritun fyrir námskeiðið. Úff. Mín forritunarafrek einkennast af nokkrum makkróum sem ég hef skrifað í Excel og svo smá HTML fikti. Sumsagt, ég kann næstum ekkert í forritun. Þar sem meirihluti fyrirlestrarins var kynning að líffræði fyrir tölvunarfræðinema, varði ég því sem eftir lifði fyrirlestrar í að velta því fyrir mér hvort að ég ætti bara að hætta við allt saman. Fyrir það fyrsta, þá langar mig hreint ekki að koma aftur með skottið á milli fótanna til námsráðgjafans míns og segja henni að ég sé aftur hætt við að taka valnámskeið. Í öðru lagi hefur mig lengi langað til þess að læra eitthvað í "Bioinformatics" (mér leiðist orðið lífupplýsingatækni), og í þriðja lagi þá má segja að úrvinnsla af því tagi sem maður lærir á svona námskeiði sé það sem koma skal í lífvísindunum. Þannig að það er margt sem mælir með því að ég taki þetta námskeið. Á móti kemur hins vegar að það verður örugglega mikið vinnuálag á mér á rannsóknarstofunni á þessu misseri, og það bætir ekki úr skák að vera þar að auki að kljást við að læra forritun frá grunni meðfram svona stóru námskeiði. ARG!!!!!!!!!

Ég kíkti því á netið þegar ég kom heim og komst að því að það væri til bók um Perl forritun, sem er sérstaklega skrifuð fyrir líffræðinga sem eru að kljást við "bioinformatics". Þannig að nú ætla ég að setjast upp í sófa með te og vatn og góða tónlist í eyrunum og sökkva mér ofan í bókina Beginning Perl for Bioinformatics. Eftir þá lesningu sé ég kannski hvort að ég á framtíð fyrir mér í þessum bisniss.

Posted by Erna Magnúsdóttir at 08:31 EH