Miðvikudagur, 13 mars, 2002
Kosningaumræður á íslensku

Þegar ég sat við tölvuskjáinn á rannsóknarstofunni í dag að vinna við prímeragerð, heyri ég allt í einu sagt fyrir aftan mig; "Ert þú Erna?" .... á íslensku... jamm, sko ekkert Örna.. heldur Erna, borið fram eins og það sé djé á undan enninu. Það kom svo á mig að ég snéri mér við og horfði í augun á konunni sem þetta sagði og svaraði: "Yes, that's me..." vúps.. rangt tungumál. Þarna stóð fyrir framan mig kona sem kynnti sig sem Sollu, og þá kveikti ég á perunni. Solla er nefnilega vinkona hennar Steinu sem ég vann með inni í Erfðagreiningu.

Málið var að það eru kosningar í dag og næstu daga í skólanum um það hvort að nemendur í framhaldsnámi eigi að ganga í verkalýðsfélag. Skólayfirvöld eru ekki mjög hrifin af þeirri hugmynd og því hefur rignt yfir okkur pósti og tölvupósti undanfarið, um það hversu óæskilegt það væri fyrir hið akademíska umhverfi að við gengjum í verkalýðsfélag. Flestir stúdentar í lífvísindum eru á móti aðild, aðallega vegna þess að við fáum mikið hærri styrk heldur en flestir þeir sem eru í hugvísindum og við höfum mikið minni kennsluskyldu. Fólki finnst því að við munum ekki græða neitt á aðild, heldur aðeins neyðast til þess að punga út fyrir félagsgjöldum mánaðarlega.
Hún Solla sér hlutina í aðeins öðru ljósi, og er fylgjandi aðild. Í morgun gekk hún að kjörstað og ætlaði að kjósa og komst þá að því að deildin hennar hafði látið ógilda atkvæðarétt hennar, seðillinn hennar var settur í sér-kassa, með atkvæðum sem verða "kannski" talin!!! Þvílík hneysa og móðgun við lýðræðið.

Hún lét þó ekki hendur fallast í skaut, heldur hóf að ganga um skólann, eins og sannri íslenskri valkyrju sæmir, og reka áróður fyrir aðild að verkalýðsfélaginu, og ég varð einmitt á vegi hennar.

Það var ansi gaman að spjalla við hana um þetta, því hún er búin að vera nemandi hér í 5 ár og rekist á ýmsa hluti sem henni finnst megi bæta í réttindamálum stúdenta. Það var líka bara svo gott að geta rætt um þetta á sínu eigin tungumáli og hljómað eins og manneskja, ekki eins og lítill krakki sem ekki kann að koma fyrir sig orði.

Þegar Solla kvaddi horfðu allir á mig furðu lostnir svo sagði Dave: "Is there another Icelandic person on this campus?" Og svo kom "Does it sound more convincing in Icelandic?"

Posted by Erna Magnúsdóttir at 10:10 EH

Mörðurinn er kominn með vinnu!!

Fyrirtækið heitir Icexpress. Hef störf á mánudaginn. Mér líst bara alveg ágætlega á pakkann. Þetta er íslenskt fyrirtæki, við verðum tveir á skrifstofunni, ég og Björgvin. Það tekur ekki nema einn og hálfan tíma að komast þangað, sem gerir þrjá tíma í ferðalag á dag. Bara helvíti fínnt, ekki satt?

Posted by Mordur Finnbogason at 05:25 EH