Í dag var fysti dagurinn minn hjá Icexpress. Þetta var tiltölulega rólegt ég sá hvernig hlutirnir á skrifstofunni ganga fyrir sig og nokkurn vegin hvert mitt starf verður. Á morgunn verð ég eitthvað virkari, geri hlutina meira en að horfa á þá gerða. Það verður fínnt. Enn betra er þó að vinnudagurinn verður stuttur á morgunn vegna mikilvægra leikja í meistaradeildinni. Það er einnig mikilvægt að minnka þrýsinginn á bjórkútunum á einvherjum af börunum í nágrenni skrifstofunnar. Ég held bara að mér eigi eftir að líka vel við starfið.
Helgin var fín, stórfín. Við fórum í bæinn að kaupa föt á Mörð kallinn á laugardaginn, hann átti eiginlega ekki orðið fataspjör á búkinn á sér. Hann er nefnilega orðinn svo mjór að gömlu fötin hans hanga utaná honum eins og lufsur. Hann virkar greinilega atvinnuleysismegrunarkúrinn, sérstaklega ef fólk drekkur mikið af amerísku kaffi og tekur í skvasspaða við og við.
Við komumst ekki hjá því að uppgötva að það var "Heilags Patreks messa" á laugardaginn, þar sem við gengum fram á skrúðgöngu á Fimmtu breiðgötu. Það var mikið um dýrðir í kringum þessa göngu og mikið um Íra vel við skál. Gangan varði líka allan daginn, og skipulagið í kringum hana var aðdáunarvert, þannig að þeir sem vildu komast leiðar sinnar í verslanir gátu gengið um óáreittir og fólk sem vildi horfa á skrúðgönguna fékk að njóta hennar, einnig óáreitt.
Um kvöldið fórum við svo í mat til Eyrúnar og Péturs, og þar voru líka Olivia og Björgvin. Við sátum þar við mikla gestrisni langt fram á nótt, en tókst þó, aldrei þessu vant að koma okkur heim fyrir dagrenningu. Fólki í kringum okkur finnst þessir skemmtanasiðir Íslendinga, að djamma alltaf framundir morgun, alveg stórfurðulegir og það er ekki laust við að Joss og félagar horfi á Mörð aðdáunaraugum þegar hann segir að hann hafi komið mjög snemma heim -um morguninn! En Joss spurði þó í gær: "Did you go to that Icelandic club again?" Þegar hann bankaði upp á og sá ástandið á okkur hjónunum.
Núna er hins vegar kominn mánudagur og við aftur við hestaheilsu, og ég er að elda dýrindis kjúlla handa manninum mínum, svona fyrst hann er búinn að vera að bera björg í bú í allan dag.