Föstudagur, 29 mars, 2002
Föstudagurinn góði

Hér er föstudagurinn langi kallaður the good friday. Ég veit ekki hvers vegna þessi föstudagur á að vera eitthvað betri en aðrir föstudagar. Mér dettur helst í huga að ástæðan sé að margir fá frí í vinnu þennan dag og að svo virðist sem fólk fái alla vega að hætta snemma. Ég hætti þó ekki fyrr en venjulega, kláraði minn vinnudag á eðlilegum tíma. Þessi vika er búin að vera fín hjá mér í vinnunni. Björgvin fór til íslands á mánudaginn þannig að ég hef neyðst til að halda sjoppunni gangandi þessa daga. Ef að fyrirtækið verður enn starfandi í lok næstu viku má gera ráð fyrir að ég hafi ekki klúðrað neinu stóru. Þessi vinna minnir óneitanlega svolítið á vinnuna mína hjá Útivist.

Erna er farin út að borða með Ásu úr MR og ég sit einn heima. Það er svo sem ekki slæmt. Ætli maður kaupki sér ekki einhvern hollan mat og finni sér einhverja áhugaverða mynd að horfa á. Ekki væri slæmt að fá sér svo sem einn eða tvo til að fullkomna kvöldið. Góða helgi.

Posted by Mordur Finnbogason at 07:49 EH
Hvað er þetta eiginlega? Það

Hvað er þetta eiginlega? Það mega ekki koma páskar og þá þarf að draga hálfa íslensku þjóðina upp úr jöklasprungum eða leita að þeim upp um fjöll og fyrnindi! Þetta er bara ein sönnun þess að það ætti að taka upp rötunarnám og vetrarferðanámskeið sem hluta af skyldunámsefni í grunnskólum og framhaldsskólum landsins.

Posted by Erna Magnúsdóttir at 06:29 EH