Ég er búin að hafa það svo fínt í dag. Ég fór ekki á fætur fyrr en á hádegi, og las ónæmisfræði allan seinnipartinn, sem var ekki leiðinlegt. Um sexleytið fór ég svo út að hlaupa. Það var aðeins farið að kólna og alveg hreint frábært skokkveður. Hitinn fór sko upp í 22°C í dag, það er alveg greinilegt að það er komið vor, trén í Central Park í blóma, í fjólubláu, bleiku og gulu og ilmurinn eftir því.
Ég er komin með alveg snilldargræju á tölvuna hjá mér. Það er Weather Bug, en hún er á stikunni fyrir neðan desktoppin og segir manni hvaða hiti er úti (í Central Park í mínu tilviki). Svo getur maður smellt á hana og fengið veðurspá. Það sem mér finnst best er að hún sýnir hitastigið í gráðum á Celsíus, ekki Farenheit. Hún virkar samt aðeins ef maður er sítengdur og það er bara hægt að fá upplýsingar um Bandaríkin í henni.
Það er Erna sem á heiðurinn að nýja lúkkinu. Í raun er það ekki alveg rétt því hún stal því af öðru bloggi, hún á því heiðurinn að því að heimfæra þetta nýja lúkk á bloggið okkar. Ég óska henni til hamingju með það og einnig vil ég óska henni til hamingju með að hafa lært á html í leiðinni.