Mánudagur, 15 apríl, 2002
Mér finnst þessi mynd flottari,

Mér finnst þessi mynd flottari, ég, Hildur og Lára í góðu geimi...

Posted by Erna Magnúsdóttir at 06:34 EH
Barkvöld

Við fórum á barkvöld síðasta fimmtudag. Þessi barkvöld eru haldin annan fimmtudag í hverjum mánuði á Telephone Bar and Grill.


Á myndinni sést Björgvin frá Ice Express og Erna.

Á grasrótinni má sjá fleiri myndir.

Posted by Mordur Finnbogason at 03:53 EH
Lestur eða svefn

Ég er samtals í ca þrjár og hálfa klukkustund í lestum og subway á leið minni í og úr vinnu á hverjum degi. Subwayinn er oftast frekar troðinn en í lestinni hef ég það fínnt. Nóg pláss og tiltölulega þæginleg sæti. Á morgnanna sofa margir og eru þriggja sæta bekkirnir sérlega hentugir því þá er næstum því hægt að rétta úr sér. Ég hef ekki prófað það en orðið vitni að því nokkuð oft. Ástæðan fyrir því að ég hef ekki prófað að leggja mig á þriggja sæta bekkjunum er sú að ég er að reyna að vera gáfaður og merkilegur og nota tímann í lestinni til lestrar og finnst það bara helvíti gaman. Ástæðan fyrir því að mér finnsta það svna gamana liggur í því að ég er að lesa algjöra snilldar bók, The Rise of Theodor Roosevelt. Þetta er fyrsta bók í trílógíu um þennan merka mann. Önnur bókin, Theodore Rex er einnig komin út og get ég varla beðið eftir byrja á henni. Ástæðan fyrir því að ég skuli vera að lesa þessa bók er hálf tilviljanakennd. Ég ákvað á sínum tíma að það væri sniðugt fyrir mig að kynnast sögu Bandaríkjanna fyrst maður er nú búsettur í þessu landi. Því keypti ég mér The Penguin history of the US en sú bók þótti mér ekki skemmtileg og illlesanleg. Það er jú ekki auðvelt að skrifa sögu Bandaríkjanna í einnu bindi. Einn dag þá gleymdi ég bókinni heima og mætti því bókarlaus niður á Penn station. Þótti mér það slæmt því ég var í miklu gáfumannastuði og gekk því inn í bókabúð og valdi þessa bók um Theodor á hlaupum (þar eð ég var á hlaupum og valdi bókina, ég valdi ekki bókina "Theodor á hlaupum"). Ég vildi reyndar halda áfram að lesa eitthva tengt sögu bandaríkjanna og þetta var eina bókin sem ég sá strax sem tengdist sögu. Síðan þá hefur bókin um sögu bandaríkjanna safnað ryki og ég er svekktur í hvert skipti sem lestin stoppar í Inwood (þar fer ég úr lestinni) því þá eru að minnsta kosti átta tímar í að ég geti haldið áfram. Er ekki bara málið að þýða þessa bók yfir á íslensku, kannski ég ætti bara að gera það, maður er jú ekki svo slæmur penni (hvernig getur maður verið penni?) Hmmmmm.

Posted by Mordur Finnbogason at 12:17 EH
Dilwale Dulhania le Jayenge

Ég var að lesa síðurnar hjá Ágústi og Siggu og þessi umræða um hindipopp vakti (óumflýjanlega) upp gamlar og góðar minningar hjá mér. Mér finnst Doob Doob o'Rama flottur diskur, en í mínum huga kemst ekkert í hálfkvisti við Dilwale Dulhania le Jayenge (enska; The Bravest one Will Cross the Bridge).

Kannski vegna þess að ég sá hana svo oft þegar ég var á Indlandi og var alltaf með spóluna í vasadiskóinu (já, það eru fleiri ár síðan en ég kæri mig um að telja, a.m.k. var ekki hægt að fá geisladiska á Indlandi þá).

Ég ákvað að leita á netinu og finna tónlistina úr þessari frábæru Bollywood-mynd til þess að leyfa lesendum að njóta hennar, og kannski líka af því að ég er búin að týna spólunni. Og viti menn, ég fann síðu þar sem hægt er að hlusta á öll lögin úr myndinni (bara ekki haka við fleiri en eitt lag í einu, þá kemur bara einhver auglýsing frá símafyrirtæki). Núna væri ég líka til í að eiga gemsa, því að það er líka hægt að fá "hringitóna" með lögum úr myndinni.

Þegar ég hlustaði á Tuje teka to, þá fékk ég alveg sting í magann af nostalgíu. Ég fann lyktina sem var svo einkennandi fyrir marga staði á Indlandi, svona sambland af skítafýlu og kryddlykt, mundi eftir röku og heitu loftinu, en síðast en ekki síst, þá mundi ég eftir því að þegar þetta lag kom í myndinni í fyrsta skipti sem ég sá hana, snéri Sattar, litli indverski strákurinn sem ég fór með í bíó sér að mér og sagði: "Erna, You, me, boyfriend, girlfriend, yes?".

Posted by Erna Magnúsdóttir at 01:30 FH