Föstudagur, 3 maí, 2002
Ísbíll

Rétt í þessu var ísbíll að aka fram hjá skrifstofunni. Mig langar í ís. Merkilegt er að áður en bíllinn fór fram hjá langaði mig ekki í ís. Eins gott að það eru ekki ísbílar á hverju stræti..

Posted by Mordur Finnbogason at 05:12 EH
...að fóstur jarðar minnar strönd og hlíðum...

Mér sýnist allt stefna í það að ég kíki í heimsókn að Fögru landi ísa í lok maí. Það er þó ekki orðið alveg útséð með það enn, en í augnablikinu eru á því 99% líkur.

Það vegur þungt í ákvörðun minni að hún Herdís vinkona verður heima um þær mundir, og ég get sennilega dobblað hana til að draga mig upp einhverja fjallshlíðina, ef rassinn á mér er ekki orðinn of kólesterólmettaður eftir vetrardvöl í henni Ameríku. En það er líka annað tilefni að Íslandsför. Hún mamma mín er nefnilega að verða stúdent, og mig langar svo í útskriftina hennar.

Posted by Erna Magnúsdóttir at 02:06 EH
Fyndni

Ehemm.... það er spurning hvort maður eigi að halda áfram að hafa könnun á síðunni. Málið er að það voru 11 manns búnir að greiða atkvæði í gær, og svo gerðist ákveðin manneskja alveg rosalega fyndin og greiddi skrilljón atkvæði. Að minnsta kosti sýndi teljarinn minn bara tvær heimsóknir í millitíðinni. Þetta segir held ég mest um mig sjálfa. Ég vel mér mjög kurteisa og andlega þroskaða vini....

Posted by Erna Magnúsdóttir at 07:56 FH