Ég fór snemma heim í dag til að fylgjast með leik Vals og KA. Ég kom við í búð í leiðinni til að fá mér einn bjór til að svolgra í mig áður en lestin kæmi. Um það bil þegar komið var að mér að borga fyrir bjórinn kom strákur gangandi inn í búðna með risastóra lifandi slöngu um hálsinn. Mér brá svo mikið að ég henti peningunum í afgreiðslumanninn og hljóp út á lestarstöð og er varla enn búinn að jafna mig. Er þetta eðlilegt?