Sunnudagur, 12 maí, 2002
Kvenmannsleysi

Ég var að blammera strákana á frjálshyggju.is. Ha, ha, ha..... Ég sagði við þá að það væri greinilegt á öllum skoðunum þeirra að þá hrjáði kvenmannsleysi..... Svona er nú gaman að lesa ónæmisfræði....

Posted by Erna Magnúsdóttir at 10:54 EH
Próflestur????

Núna á ég að vera að læra fyrir ónæmisfræðipróf. Og auðvitað er ég ekki að því. Ég er nefnilega orðin leið á að vera bara með eina síðu á blogger og eiga ekki alvöru heimasíðu þar sem ég get sett inn eitthvað fleira dót. Þannig að ég er búin að ver að læra á UNIX, svona bara einhverjar beisik skipanir þannig að ég geti breytt skránum mínum á Columbia heimasvæðinu mínu þannig að allir geti lesið þær. Komst líka að því mér til einskærrar ánægju að FTP var ekki eitthvað hræðilegt monster og erfiður prósess til þess að færa skrárnar mínar inn á heimasvæðið mitt. Ég hef oft notað FTP, ég vissi bara ekki af því að það héti FTP (jamm, pínu blonde). Og svo þegar ég verð búin í prófum, þá ætla ég að læra að búa til mína eigin heimasíðu. Jibbí!

Posted by Erna Magnúsdóttir at 09:53 FH