Sunnudagur, 19 maí, 2002
Fullkomin helgi á labbinu!

Júhúúúú!!!! Vísindin rokka feitt eina ferðina enn! Ég er komin heim eftir mjög svo fullnægjandi dag á rannsóknarstofunni. Það gekk allt upp sem ég gerði um helgina. Ég er loksins komin með áþreifanlegar niðurstöður til þess að spekúlera í fyrir labbfundinn sem ég held á fimmtudaginn. Það er þungu fargi af mér létt. Nú get ég bara dúllað mér við að búa til glærur og súlurit og lesið mér til um bakgrunn verkefnisins og slegið í gegn á fundinum... eða þannig. Ég þarf líka að vera vel undirbúin, því ég hitti sennilega Kathryn, prófessorinn minn í vikuni og spjalla við hana um hvort ég vilji slást í hópinn með labbinu hennar. Ég þarf að hafa einhverja hugmynd um hvað mig langar að vinna við.

En, ég á frí í kvöld, og við Mörður ætlum að fara á Changing Lanes í bíó. Okkur langar frekar að sjá hana en spæderman eða starvors, það er örugglega svo troðið í bíó á þær núna.

Posted by Erna Magnúsdóttir at 06:13 EH
Enn meira stuð á labbinu.

Já, þá er ég á labbanum eina ferðina enn, og alltaf held ég að mér takist að klára tilraunirnar mínar innan skamms! Hvílíkar ranghugmyndir!

Annars ætla ég að hætta snemma í dag. Ég er búin að dobbla Mörð til að koma með mér út að hlaupa, og svo ætlum við að fara í bíó í kvöld. Annað hvort á Köngullóamanninn, eða á Stjörnustríð -Árás einræktanna.

Posted by Erna Magnúsdóttir at 01:46 EH