Miðvikudagur, 22 maí, 2002
Tómas bendir á Tíkina. Kúl

Tómas bendir á Tíkina. Kúl síða finnst mér! Meira svona. Ég held að þetta sé eitthvað sem alvöru konur vilja lesa, ekki láta heilaþvo sig á einhverju femin.is (sem ég kæri mig ekki um að linka á það er svo mikið kjaftæði!) Ég verð svo geðbiluð á að lesa frjálshyggjusíðuna og eitthvað annað hart einhliða kjaftæði, og held að síðan hjá stelpunum sé kærkomið heilavítamín. Annars er eitt sem ég velti fyrir mér. Af hverju eru allir þessir "hugsjónavefir" nær alltaf annað hvort skrifaðir af körlum eins og frjálshyggjan, eða konum eins og Bríet? Er ekki pláss fyrir bæði kynin á svona síðu? Eru skoðanir og lífsviðhorf karla og kvenna svo ólík að þau rúmist ekki á sama miðlinum?

Posted by Erna Magnúsdóttir at 06:53 EH
Ég nenni ekki að gera

Ég nenni ekki að gera fyrirlestur, ég er farin út í góða veðrið....

Posted by Erna Magnúsdóttir at 02:34 EH
Útskrift í blíðunni

Það er yndislegur sumardagur hér í Morningside Heights í dag. Það er búin að vera útskrift í nokkra daga í Columbia, og það hefur ekki farið framhjá nokkrum manni. Það labbar fólk um göturnar í ljósbláum Harrý Potter skikkjum, með ljósblátt spjald á hausnum. Í dag var svo aðalathöfnin, akkúrat þegar ég fór út í skóla til þess að prenta út nokkrar glærur. Ég þurfti að fara krókaleiðir til þess að komast inn á þann hluta kampusins sem líffræðibyggingin er og sá á leiðinni að skólagarðurinn var stappfullur af fólki. Í tröppunum fyrir neðan Low Library sat fólkið með hattana í Harrý Potter-kuflunum, og á grasflötinni fyrir neðan voru áhorfendurnir. Ég sá einmitt lok athafnarinnar og hún var mjög virðuleg, spiluð lúðrasveitatónlist og allt. Ekki skemmdi góða veðrið heldur fyrir. Þegar ég fór svo til baka heim, var athöfnin um garð gengin og skólalóðin var stappfull af klappstólum. Ég hef aldrei áður séð svona marga klappstóla í einu. Ég rétt gat þrætt krákustíg í gegnum ósköpin til þess að komast út úr garðinum.

Ég hlakka ekkert smá þangað til ég fæ svona galdrakufl til að klæðast, en ég held að ég fái svarta húfu. Ég þarf samt víst að láta mig dreyma í um það bil fimm ár þar til af því verður!

Posted by Erna Magnúsdóttir at 02:15 EH
Krónuflón

Já, mér datt það í hug, krónan hefur ekkert annað gert en veikst frá því að menn fóru að tala um vaxtalækkanir. Það er líka kannski allt í lagi, því að Íslendingar þurfa sennilega meira á því að halda að vextirnir lækki en að krónan styrkist. Svo eru líka fyrirtæki í útflutningi, eins og tildæmis þau sem flytja út allan fiskinn okkar, sem hentar bara ágætlega að hafa krónuna ekkert of sterka. Var það ekki meiningin með öllum gengisfellingunum hér í de gamle dage?

Posted by Erna Magnúsdóttir at 10:13 FH