Fimmtudagur, 23 maí, 2002
Ljúfa, ljúfa, líf

Það er búið að vera svo meiriháttar veður hér í dag að það er engu lagi líkt. Akkúrat þegar ég er komin í frí!

Ég skrapp og talaði við Carol Prives sem ég verð að vinna hjá í sumar. Mér finnst hún alveg frábær. Hún er svo mikil mamma í sér. Gaf mér góð ráð í sambandi við kúrsa og kennslu og sýndi mér myndabók um Ísland sem hún Inga Reynis gaf henni. Hún er reyndar nýkomin af hinum árlega p53 fundi í Barcelona. En p53 er prótínið sem labbið fæst við að rannsaka. Það er sumsagt svaka ráðstefna á hverju ári, bara um þetta prótín! Hún var alveg hreint geislandi af eftirvæntingu, því hún hafði fengið svo margar hugmyndir á þessum fundi.

Ég gekk svo aðeins um kampusinn, en fór svo heim og lagði mig, því ég svaf illa í nótt. Ég stökk tvisvar fram úr rúminu um miðja nótt af því að ég hélt að ég hefði sofið yfir mig. Svo núna var ég að koma úr mínum rútínu skokktúr í Miðgarðinum.

Og þá er það bara að mana sig upp í það andlega að smakka sússí.

Posted by Erna Magnúsdóttir at 07:17 EH
Ljúfa líf

Jæja, nú er ég formlega búin med rótasjónina á labbinu hjá Kathryn Calame. Ég eisadi labbfundinn í morgun, eda ad minnsta kosti gekk mikid betur en ég thordi ad vona.

Kathryn baud mér líka ad koma aftur í haust ef mig langadi, og gera doktorsverkefnid hjá henni. Ég ætla ad sja til. Hún getur nefnilega verid pínu tæfa, tho hún sé gódur vísindamadur.

Núna er ég bara ad fara ad hitta Noeliu vinkonu i hádegismat, og svo ætla ég út ad hlaupa ad prófa nyju hlaupaskóna sem ég keypti nidri í bæ í gær.

Í kvöld ætlum vid Mördur ad vera virkilega "adventurous" og prófa sushi í fyrsta skipti, á stad rétt hjá heima sem heitir Tomo. Svona smá rjómó kvöld ádur en ég fer heim.

Posted by Erna Magnúsdóttir at 12:02 EH
Vonbrigði

Bjarni og Ágúst benda á að Tíkarstelpurnar eru alltsaman súsarar.... =( Ég er alveg sammála Bjarna um það sem hann hefur um það að segja. Ég sem hélt að þetta væru svona sjálfstæðar ungar konur sem hefðu tekið sig saman um að skrifa sínar skoðanir á ýmsum málefnum, en þá er eitthvað flokkadæmi á bakvið þetta.

Posted by Erna Magnúsdóttir at 08:07 FH