Föstudagur, 24 maí, 2002
Iceland, here I come!

Ég er orðin svo mikil A-manneskja að ég er orðin hrædd. Ekki nóg með það að ég sé búin að venja mig á að fara að æfa á morgnana, heldur var fyrsti frídagurinn minn í dag og ég fór á fætur fyrir klukkan átta. Er ég orðin svona gömul?

Þetta var reyndar ágætt, því ég þvoði trukkahlass af þvotti og pakkaði í töskur og náði líka að fara út að hlaupa í góða veðrinu. Það var þrjátíu stiga hiti hjá okkur í dag. Mér finnst það alveg passlegur hiti. Þegar það er orðið heitara en þrjátíu stig fer mér að verða of heitt. Það er líka vonlaust að fara út að hlaupa ef það eru þrjátíu og fimm gráður eða eitthvað. Ég var reyndar svo heppin að það þykknaði aðeins upp rétt fyrir skokkið í dag, þannig að það var alveg passlegur skokkhiti. Reyndar notaði ég drykkjarkrana Miðgarðsins meira en ég hef gert áður.

Við Mörður fórum svo á barinn eftir kvöldmat og sötruðum nokkra öllara. Ég fékk alveg fiðring í magann á barnum þegar Led Zeppelin voru settir á fóninn.. "Come to the land of the ice and snow, with the midnight sun, where the hotsprings flow"...

Iceland, here I come!

Posted by Erna Magnúsdóttir at 11:40 EH
Sússí

Við fórum á Tomo í gær, og ég verð bara að segja það, mér finnst sússí vera algert æði! Það bráðnar alveg upp í manni, og svo er piparrótarbragðið svona skemmtilegur kontrast. Jummí! Og ég var svo hrædd um að þetta væri allt saman svo kyrfilega innpakkað í þang og þara að maður sæi ekkert í fiskinn. En það voru sko engir hringormar í fiskinum, þannig að ég þorði alveg að prófa. Mörður var ekki eins hrifinn þó. Nú get ég farið að borða sússí í hádeginu, því að það er hægt að kaupa sússíbakka út um allt í kringum skólann.

Ég var líka ekkert smá mikil pæja, gat borðað þetta allt með prjónum, en þetta er bara tilraun mín númer tvö að borða með prjónum. Mörður var of svangur til þess að stunda prjónaæfingar og notaði til skiptis gaffal og guðsgafflana.

Eftir matinn fórum við svo á barinn, en það var einmitt búið að opna upp á þak á The Heights, þannig að við sátum og sötruðum bjór undir beru lofti. Sannkallað rjómókvöld!

Posted by Erna Magnúsdóttir at 01:28 EH