Sunnudagur, 26 maí, 2002
Skemmtilegar heimasíður

Stundum þegar maður er að þvælast á netinu lendir maður inn á afar skemmtilegum og vel hönnuðum síðum.

Posted by Erna Magnúsdóttir at 11:16 EH
Ísland

Ég lenti í Keflavík rétt rúmlega sex í morgun. Ég svaf náttúrulega ekki neitt í vélinni, en það hvarf úr mér öll syfja við komuna til landsins. Veðrið var svo fallegt í morgun, bjart yfir og kyrrt. Ég fylltist þessari dæmigerðu orku sem kemur yfir mann á vorin á Íslandi. Það var frábær tilfinning.

Ég spjallaði við pabba og Björgu í morgun, skellti mér svo bara í heita pottinn og í sólbað, sem gerði mig svo syfjaða að ég lagði mig í tvo tíma. Pabbi vakti mig svo upp úr tólf og ég dreif mig á lappir og fór svo í heimsókn til mömmu seinnipartinn. Hún tók að ofan fyrir mér með stúdentshúfunni, og við spjölluðum allan seinnipartinn.

Ég horfði líka á stuttmyndina sem Guðný systir og vinkonur hennar gerðu í vetur og sendu í stuttmyndasamkeppni á vegum grunnskólanna. Myndin var meinfyndin, enda unnu þær fyrstu verðlaun. Algerar pæjur. Nú er ég hins vegar alveg að lognast út af, en ég held ég verði nú að fara að pakka oní bakpokann fyrir gönguna.....

Posted by Erna Magnúsdóttir at 05:39 EH