Ég pantaði kapal í dag hjá Time Warner Cable. Þá get ég horft á alla HM leikinal, auðvitað með góðri hjálp frá videtækinu þeirra Josh og Melssu. Mér finnst það vera svolítið svindl hér að maður þarf að borga sérstaklega fyrir kapalboxið en afruglarinn er frítt með hjá Stöð 2. Meira að segja þarf ég að borga tuttugu sent á mánuði fyrir fjarstýringuna. Ætli þeir komi heim til mín og taki batteríin úr henni ef ég borga ekki?
Er að prufa nýju loftkælinguna. Það er afar þæginleg tilfinning að finna kalda loftið streyma um alla íbúðina. Frekar Kúl.
Dagurinn í dag er búinn að vera sá versti sem ég man eftir í langan tíma. Vinnan var tómt rugl frá upphafi til enda. Í lestinni á leiðinni heim gat ég ekkert lesið þar sem ég var sífellt með hugann við allt bullið í vinnunni, sem er hið versta mál því ég er að lesa einstaklega góða bók. Nema hvað svo þegar ég loksins kom heim þá spilaði ég squast við Josh, Dan og Matthew sem var bara helvíti fínnt nema ég tapaði öllum leikjunum nema einum.
Eftir squashið fór ég upp til Josh til að fá lánað hjá honum videotækið hans. Hann var nefnilega svo góður að bjóðast til að lána mér tækið sitt svo ég geti tekið upp alla HM leikina, þeir eru á nóttinni hér. Þá hófust vandræði. Josh á Tivo sem er svaka græja, miklu betri og flottari en video og þegar við vorum að losa kapalinn úr Tivoinu kom í ljós að hann hafði forskúfast og við áttuðum okkur á því of seint og rústuðum tækinu. Tivoið virkar ekki lengur. Og mér finnst eins og það sé mér að kenna. Djöfull.
En ég er alla vega kominn með videotæki og Josh á ekki lengur flottari græjur en ég. hehe