Ég fór í klippingu í dag. Það var svo sem ekkert merkilegt við það nema þegar konan var búin og ég var að borga fyrir klippinguna þá rétti hún mér nafnspjaldið sitt og sagði mér í laumi að hún rukki venjulega 25 dollara. Þá hefur hún eflaust átt við að hún fái borgað sjálf 25 dollara fyrir utan það sem ég borga á kassanum. Þegar ég svo lét hana hafa 10 dollara í tips, setti hún bara upp fílusvip. Gott á hana. Það gengur ekki að láta mann vita eftirá að maður eigi að borga eitthvað ákveðið tips.
Í þessum rituðum orðum sé ég að það er einhver svört drulla á skyrtunni minni. Það kæmi mér ekki á óvart að klippikonan sé nú að drekka út tipsið mitt og gera grín að svörtu drullunni sem hún klístraði á skyrtuna mína fyrir þetta smánarlega tips.
Næst klippi ég mig sjálfur. Og borga mér rausnarlegt tips.