Fimmtudagur, 20 júní, 2002
HM

Ég get varla beðið eftir að leikir næturinnar byrji. Leikur Englands og Brasilíu er klukkan hálf þrjú í nótt og leikur Bandaríkjanna og Þýskalands um klukkan sjö. Það verður ekkert sofið í nótt. Bara drukkið mikið kaffi og eldspýtur í augnalokin til að halda þeim uppi. Annars er þetta svo spennandi að það verður varla mikið mál að halda sér vakandi. Mér finnst reyndar aðdáunarvert hvað margir hér fylgjast með þessum leikjum, maður heyrir af íslendingum sem sofa í vinnunni og vaka yfir leikjunum. Það eru langar biðraðir inn á bari sem eru með opið og sýna leikina. Það þarf að mæta nokkrum klukkustundum fyrir leiki til að komast inn. Ég held reyndar að þetta séu allt Evrópubúar, þó hef ég vaknað upp við fagnaðarlæti þegar lið Bandaríkjanna hefur verið að spila.

Hver er annars spáin fyrir leiki næturinnar. England vinnur þrjú eitt og þýskaland vinnur fimm núll. Við erum með veðmál í vinnunni þar sem við spáðum fyrir um öll úrslit í keppninni. Ég spáði því að Bandaríkin myndu ekki vinna leik og nú er kominn tími til að sparka þessu leiðindarliði út í hafsauga.

Posted by Mordur Finnbogason at 08:21 EH