Fjórði júlí var frábær! Við tókum okkur bæði frí og fórum til Conneticut, þar sem Edda og Magnús, sem Ásthildur er hjá héldu sína árlegu grillveislu. Það var alveghreint grillandi heitt úti, þannig að börnin léku sér í sundlauginni, en fullorðna fólkið spjallaði saman í skjóli undir trjánum. Þetta var heldur engin lítil veisla, það voru örugglega fimmtíu manns á svæðinu. Það var alveg frábært að hitta Ásthildi aftur, en hún verður uppfrá næstu vikuna að passa heimasætuna á bænum og sjá um heimilið. Það stefnir allt í að ég fari í húsmæðraorlof til hennar þarnæstu helgi þegar Mörður verður á Íslandi.
Um áttaleitið hélt svo hersingin út í garð sem er þarna í nágrenninu til þess að horfa á flugeldasýningu. Þar voru velflestir íbúar bæjarins búnir að koma sér fyrir á teppum á grasflötinni. Þetta var sko alvöru pikknik, því að Magnús bauð upp á samlokur og bjór og kalda kjúklingaleggi á meðan við biðum eftir að sýningin byrjaði.
Flugeldasýningin var sú flottasta sem ég hef séð. Ég hafði orð á því við Mörð að þetta væri nú pínu öfugsnúið, það tilheyrir frekar í manns huga að vera í roki og gaddi að horfa á flugelda, ekki í þrjátíuogfimm stiga hita og logni. En út af þvi hvað loftið var kyrrt fengu flugeldarnir að njóta sín enn betur. Sýningin byrjaði samt rólega, en varð svo flottari og flottari eftir því sem á leið, og endaði svo á svaka látum og rauðum, bláum og hvítum litum meira en hálftíma seinna!
Það er óhætt að segja að Magnús og Edda séu gestrisið fólk, því glæslegri grillveislu man ég ekki eftir!