Ég hata Makka. Ég verð alltaf fúl þegar ég sé: Switch auglýsingarnar í sjónvarpinu. Núna var ég búin að skrifa færsluna hér á undan með þvi að nota unicode táknin fyrir alla íslensku stafina, ţví Lyklaboðssían hans Sindra virkar ekki í Makkintoss. Svo þurfti ég að breyta dálitlu og ýtti á Edit og þá hurfu allir íslensku stafirnir....
Þess má geta að þessi færsla var líka skirfuð þannig. Ég ætla sko ekki að ýta á Edit núna.......
Jćja, mér er nćstumþvi batnað i bakinu, thannig að ég er ekki thess heiðurs aðnjótandi lengur að bera viðurnefnið Kroppinbakur. Er ţað vel.
Mánudagar eru pínulítið erfiðir á nýja labbinu. Ţað eru nefnilega labbfundir á mánudagsmorgum,fram yfir hádegi, ţannig að ég byrja aldrei á neinu fyrr en í fyrsta lagi klukkan eitt. Ţetta verður svo enn erfiðara í vetur ef ég verð á ţessu labbi, ţví frá tólf til rúmlega eitt er málstofan, ţar sem ýmsir vísindamenn flytja erindi.
Ţessari mánudagsstemningu virðist fylgja vinna frameftir, ég sit hér enn á labbinu klukkan rúmlega ellefu og bíð eftir ţví að gelin mín klárist. Ţað er reyndar bara kósí. Ég er búin að vera að dúlla mér við að búa til allskonar lausnir sem ég ţarf að nota og hlusta í leiðinni á rokk í útvarpinu.
Ţað versta er að ég nć sennilega lítið að hitta Mörđ í dag, hann kyssti mig bless thegar ég var hálfsofandi í morgun og svo mćtti ég honum ţegar ég var á leiðinni heim í kvöldmat og hann á leiðinni í skvass í gymminu, en ţar smellti hann á mig öðrum kossi.