Nú er Mörður að pakka niður í töskur. Hann er að fara í sumarfrí til Íslands á morgun, þannig að ég verð grasekkja í tíu daga. Það verður pínu skrítið að koma alltaf heim í tóman kofann. Mér segir líka svo hugur að ég eigi eftir að vinna meira en undanfarið þar sem það verður ekki neitt sem dregur mig heim.
Ég hlakka líka til þess að Mörður komi heim aftur, sérstaklega af því að hann kemur kannski með soðningu úr Laxá í Mývatnssveit.
Góðan og blessaðan daginn!
Ætli síðan líti betur út svona þegar ég er búin að skrifa meira?
Ég vona það.
Vá, mér finnst þetta vera orðið ýkt kúl! Kannski samt pínu túmödds.
Fréttirnar af Skaftárhlaupi minna mig á þegar við Mörður gengum á milli Sveinstinds, Skælingja og Eldgjár verslunarmannahelgina í hittifyrra. Þá var einmitt Skaftárhlaup og ótrúlegt að sjá hversu bólgin og brjáluð áin varð. Ég held líka að þessi leið sé ein sú fallegasta á Íslandi. Mér finnst hún að minnsta kosti fallegari en Laugavegurinn og svo leiðin sem við Herdís gengum í vor á milli Mývatns og Ásbyrgis, og þá er nú mikið sagt. Það er líka miklu meiri óbyggðafílíngur inni á Sveinstindi en á hinum tveimur leiðunum, manni líður einhvern veginn eins og maður sé staddur á tunglinu þegar maður stendur á Sveinstindi og horfir yfir landslagið. Þetta var líka svaka rómó að vera bara tvö á ferð í þrjá daga, og ekki skemmdi brakandi blíðan fyrir.