Júhú!!!! Við vorum að fá pakka í póstinum! Fyrir tveimur mánuðum síðan fengum við kynningartilboð í gegnum blaðið Backpacker, á sólgleraugum. Allt sem við þurftum að gera var að senda þeim miða og merkja við hvaða sólgleraugu á miðanum okkur langaði í, og borga sendingarkostnað. Þetta eru tvöhundruðdollara sólgleraugu stykkið, þannig að þetta var þvílíkur fengur fyrir fólk sem vantar sólgleraugu.
Og þau voru að koma í póstinum í dag. Mín eru ýkt kúl. Ég hlakka til að sjá Mödda með sín...
Bjartur og ferskur morgun í New York. Það voru bara tuttugu gráður úti þegar ég vaknaði í morgun (fyrir klukkutíma síðan), og ég er því að íhuga að mæta ekki fyrr en eftir hádegi á labbið og nýta morguninn í smá hlaupasprett. Það er líka svo fínt að hlaupa svona í júlí, því að frjókornamagnið hefur lækkað mikið og ég get því dregið andann á hlaupunum. Það er svo lítið af frjói heima að þetta truflar mig venjulega ekki mikið, en hér er svo mikill gróður að stundum er eins og loftið sé mettað af frjókornum. Munurinn er líka að ég finn bara fyrir grasfrjóinu heima, en hér er svo mikð birki að ég fæ ofnæmi fyrir því líka.
Ég hef lítið að gera á labbinu í dag, ég er að bíða eftir að allt efnið í tilrauninrnar mínar komi í hús. Ég ætla samt að kíkja þangað eftir hádegi, og lesa kannski eina eða tvær vísindagreinar áður en ég fer í hina árlegu lautarferð doktorsnemanna í deildinni. Hún er nú reyndar bara fyrir framan bygginguna, en er ágætisafsökun fyrir því að skvetta í sig smá bjór undir berum himni og kannski næla sér í kjúllalegg, ef Justin bíður upp á svoleiðis. Ekki verður minna að gera eftir lautarferðina, því að í kvöld er annar fimmtudagur mánaðarins og brjórkvöld Íslendinganna suður á Telephone Bar. Ekki leiðinlegt!