Ásthildur kíkti til mín niður á Manhattan á föstudagskvöldið. Við fórum út að borða í Litlu Ítalíu, og fórum svo og hittum Óla, vin hennar, á Itremerli á West Broadway. Þar var Óli með vinum sínum -svaka stuð í gangi. Á staðnum virtust samt ekki vera neitt nema rússneskar og lettneskar konur með skuggalegum amerískum karlmönnum. Ein þeirra var í styttsta pilsi í heimi, með bláasta augnskugga veraldar. Hún sat við barinn og borðaði sesarsalat og drakk með Grand Mariner, straight up......
Frá Itremerli fórum við á Nakta hádegisverðinn, þar sem var dúndurstemning að vanda. Við dönsuðum þar til lapprinar voru að detta af okkur til klukkan fjögur um nóttina. Sem betur fer var körfuboltaþjálfarinn ekki í dyrunum. Við skröltum heim í morgunsárið, og Ásthildur gisti hjá mér.
Í gær dró Ásthildur mig svo í endurhæfingu norður til New Canaan, þar sem við sátum í sólbaði við sundlaugarbakkann allan daginn og svo buðu Maggi og Edda öllum út að borða um kvöldið. Ég fór heim til mín í tóman kofann eftir það. Heilsan var nú ekkert frábær. Ég keypti froðublaðið Marie Claire til að lesa á leiðinni heim í lestinni, svona til þess að ofreyna nú alls ekki heilasellurnar við lestur, en þetta blað hefur mjög lítið lesefni, aðallega bara myndir af fötum og glingri, fullkomið fyrir þunna konu.
Þegar heim kom hjúfraði ég svo um mig upp í sófa og horfði á klassíkerinn Hannah and her sisters. Það var frábært, alveg þangað til að ég heyrði í músinni. Ég sem hélt að Miss Maddie hefði fælt hana í burtu. Mér stóð nú ekki alveg á sama að vera alein og óvarin heima, með mús í stofunni. Enginn Mörður til þess að vernda mig. Þannig að þegar ég fór að sofa hafði ég kveikt á öllum ljósum í stofunni og á sjónvarpinu líka, því einhvers staðar heyrði ég því fleygt að mýs fældust sjónvörp út af hátíðnihljóðinu. Svo lokaði ég hurðinni inn í svefnherbergið og setti viftuna á hæsta styrk, ekki af því að mér væri heitt, heldur til þess að framleiða sem mestan hávaða, þannig að ég myndi nú ekki heyra í músinn ef hún væri á vappi.
Ég get ekki beðið eftir því að meindýraeyðirinn komi í heimsókn.