Mánudagur, 15 júlí, 2002
Dal-bat

Þegar ég var á leiðinni heim af labbinu áðan, hitti ég Vasoo, og hún bauð mér heim í kvöldmat, svo að ég þyrfti ekki að fara ein heim og elda fyrir mig eina... Hún er svo myndó hún Vasoo. Hún gerir sitt eigið skyr og eldar öll kvöld. Reyndar sagði hún við mig að skyrgerðin væri ekkert mál: "It is just a culture" þar sem hún meinti að þetta er bara svona bakteríurækt eins og við vinnum með á labbinu, nema þessi er í ísskápnum heima! Það var líka svo gott að smakka svona alvöru indverskan, beint úr eldhúsinu hennar, dal-bat, sem á íslensku útleggst sem linsubaunasósa með hrísgrjónum.

Ég dáðist líka að henni og frænku hennar, að borða matinn með höndunum, en þær hnoða saman linsubaunajafningnum og hrísgrjónum í kúlu, að hætti Suður-Indverja, og stinga henni svo upp í sig. Prashant, eiginmaður Vasoo, sem að þessu sinni var ekki heima, borðar víst ekki þannig, heldur með skeið, og ég fékk því teskeið til þess að borða matinn minn með. Við það fékk ég nett nostalgíukast, því ég hef held ég ekki borðað hrísgrjón með teskeið síðan á Indlandi....

Posted by erna at 11:07 EH