Þriðjudagur, 16 júlí, 2002
Gallað eintak

Ég fór til læknis (physhiatrist) í morgun útaf bakinu á mér. Hann komst að því að ég er stórgallað eintak, með hina og þessa fæðingargalla. Á næstu vikum á ég að fara í meðferð, og það á að reyna að leiðrétta þessa galla með sjúkraþjálfun sem kallast Manual Therapy. Það er að minnsta kosti gott að vita að þetta bakvesen er ekki af því að ég sé að lyfta vitlaust.

Læknirinn sem skoðaði mig var mjög næs, potaði í mig alla og mældi fram og til baka. Hann varð yfir sig hrifinn þegar hann uppgötvaði að ég væri frá Íslandi og sagði mér frá því sem hann hafði lesið um Ísland í Times undanfarið.

Hann spurði mig meðal annars: "I just don't understand, why do they want to sink allt this beutiful land under water?"

Posted by erna at 06:36 EH
Trackback

Þið hafið kannski tekið eftir "trackback" hlekknum fyrir neðan alla póstana í nýja blogginu. Þetta er sérstakur fídus í nýja bloggforritinu okkar, Movable Type, sem auðveldar "samræður" á milli blogga, þ.e. þetta er einskonar leið fyrir aðra bloggara að láta mann vita að þeir séu að vitna í færslurnar manns.

Annars útskýrir Einar þetta mjög vel á sinni síðu.

Posted by erna at 05:22 EH