það er ekki búið að vera neitt svakalega gaman í dag. Ég er búin að verja megninu af deginum á biðstofum vegna krankleika minna, en það á eitthvað að reyna að lappa upp á vankantana með nuddi næstu daga.
Ég vann samtals í klukkutíma í dag. En sem betur fer hefði ég líka bara unnið í klukkutíma þó ég hefði ekki verið í biðstofuleik. Þessi leikur er nú sennilega bara hollur hverjum líffræðingi, og þjálfar þolinmæðina, en hún er nauðsynleg hverjum þeim sem ætlar að leggja stund á sameindalíffræði.
Þar sem ég sat á annarri biðstofunni og las NYT, settist kona við hliðina á mér og spurði hvort að hún mætti nokkuð lesa þá hluta af blaðinu sem ég var ekki að lesa. Ég hafði að sjálfsögðu ekkert á móti því og rétti henni hin blöðin, en mér varð hugsað heim til Íslands og reyndi að sjá það fyrir mér ef að ég væri á biðstofu þar að lesa Moggann og til dæmis einhver maður myndi labba upp að mér og spurja hvort hann mætti fá Íþróttasíðurnar úr blaðinu mínu. Myndi það gerast á Íslandi? Ég held ekki.