Fimmtudagur, 18 júlí, 2002
Ummælin komin í lag

Jæja, kommentin eru komin í lag, þökk sé Einari Erni, en ég var orðin hálfmóðguð yfir því að enginn setti inn ummæli, en datt ekki í hug að þau væru biluð fyrr en Einar sagði mér frá því!

Það minnir mig á að ég á eftir að setja "mail to" hlekk inn á síðuna.

Posted by erna at 10:48 EH
Sundsprettur

Ég tók mig til og skellti mér í sund eftir vinnu í dag. Ég er nefnilega svo viðkvæm og brothætt þessa dagana að sund er það eina sem ég má hreyfa mig.

Ég var í smá tíma að mana mig upp í að skella mér í sund. Fyrir það fyrsta hef ég ekki synt í mörg herrans ár, og þar að auki hef ég heyrt svo margar hryllingssögur af því hvað útlenskar sundlaugar séu ískaldar. Ég plampaði loks einbeitt á svip út í Windy Corner og verslaði mér sundgleraugu, en þá var ekki aftur snúið.

Eftir vinnu stikaði ég svo í gymmið, jafnvel einbeittari á svip en þegar ég keypti sundgleraugun, og hóf leitina að sundlauginni. Leikfimihús Columbia er svo stórt, niðurgrafið á fjórum hæðum, með endalausum ranghölum, að það er ekkert grín að finna þar einföldustu hluti eins og sundlaugar. Eftir mikið plamp fann ég hana loksins á annari hæð, en það er eiginlega þriðja niðurgrafna hæðin, jarðhæð er nefnilega á fimmtu hæð í þessu húsi.

Það var nú pínu gónt á aðfarirnar hjá mér við að undirbúa sundsprettinn, sem að sjálfsögðu hófust í búningsklefanum með sturtu, en það var kona á móti mér sem glápti á mig bleyta sundbolinn minn og fara svo í hann eftir sturtuna. Enda sá ég það þegar út í laugina kom, að það voru allir skraufþurrir og óþvegnir þegar þeir stungur sér til sunds.

Ég dýfði táni varfærnislega ofaní laugina áður en ég dýfði mér úti. Viti menn! Laugin var alveg passlega heit til sunds! Ég hóf því að synda eins og óð manneskja eftir hreyfingarleysi undanfarinna daga.

Ólíkt því sem gerist heima fyrir er mjög ákveðið kerfi á sundbrautunum hér. Hver braut er afmörkuð með flotlínu, og svo er hægri-umferð á brautunum, til þess að það geti fleiri en einn synt í hverri braut í einu, árekstralaust. Þetta finnst mér alveg frábært kerfi. Svo er málið bara að finna braut þar sem fólk syndir á svipuðum hraða og maður sjálfur, og þá verða aldrei neinir árekstrar.

Það voru nú engir hörkusundmenn í lauginni. Það var eiginlega alveg hreint brjálæðislega fyndið að fylgjast með aðförunum hjá fólki. Skvampið og skvettið keyrði úr hófi fram hjá flestum. Ég hélt til dæmis að ég væri ekki góður sundmaður, en ég fór fram úr Indverja og Kínverja sem voru báðir að synda skriðsund (eða eitthvað sem líktist því), en ég var að synda bringu.

Svo er ég náttúrulega svo ótrúlega smámunasöm að eðlisfari, að ég lét það pirra mig pínu að allir sem voru að synda skrið í kringum mig réttu ekki úr fótunum, og það leit meira út eins og blessað fólkið væri að hjóla en að synda.

Eftir þúsund metra bringusund dreif ég mig upp úr, og einhvern veginn dembdist sú tilfinning yfir mig að úti væri myrkur og kafaldsbylur og það væri bara best að fara heim og fá sér heitt kakó og brauð með osti. En í staðinn tók á móti mér þrjátíuogfimm stiga hiti og níutíuprósent raki, þegar ég kom út, og ég flýtti mér heim til þess að það myndi ekki rigna á mig...

Posted by erna at 09:22 EH
HAXAberg

Ótrúlega fyndið. Heimasíða HAXA er með mynd af sömu stuðlum og við í bannernum hjá sér. Frekar fyndið, því að það eru nákvæmlega sömu hellurnar í myndinni hjá þeim, ég bjó bara til lengri mynd með því að skeyta henni saman til skiptis á hvolfi og venjulegri.... jahérna.

Posted by erna at 01:07 FH