Föstudagur, 19 júlí, 2002
Afréttari

Hún Libbý náði að rétta slatta úr mér í morgun. Ég er ekkert svakalega skökk lengur og næstu vikur ætlar hún að einbeita sér að því að halda mér beinni. Þó þetta sé nú alls ekki neitt grín, að líða svona í bakinu, þá finnst mér þetta orðalag í kringum þetta frekar fyndið. Það fyrsta sem hún sagði við mig í morgun var: "Today, we are going to concentrate on straightening you out."

-Þetta hefur aldrei verið sagt við mig áður.

Annars er búið að vera nóg að gera í dag. Ég var mætt í sjúkraþjálfun klukkan hálfátta í morgun og varði svo deginum á labbinu við DNA einangrun. Seinnipartinn var svo bjórkvöld hjá líffræðideildinni, þar sem ég renndi niður köldum bjór og spjallaði við aðra doktorsnema í deildinni.

Á morgun verður svipaður dagur, vinna og svo djamm með bekknum mínum.

Posted by erna at 09:21 EH