Hmu!
Hvar er Mörður. Ég er búin að bíða og bíða og bíða og bíða. Nú hef ég mestar áhyggjur af því að hann hafi lent í veseni í innflytjendaeftirlitinu eða eitthvað álíka kjaftæði. Urr. Það er samt enn of snemmt að hafa áhyggjur.....
Vúhúúúú!!! Mig kitlar í magann af spenningi. Mér líður eins og litlum krakka að bíða eftir jólunum. Mörður er að koma heim eftir klukkutíma =) Og þið getið sko stólað á það að hann kemur heim til blautra kossa og beint í heitan faðm eiginkonunnar!
Það er alltaf pínu fyndið þegar Mogginn talar um að eitthvað hafi gerst í Manhattan-hverfi í New York. Í fyrsta lagi, þá er venjulega talað um Manhattan eyju, og svo er það svo ótrúlega ólýsandi frétt, því það eru svo mörg hverfi á Manhattan, sem er ekkert lítil eyja. Við búum til dæmis á Manhattan, í hverfi sem kallast Morningside Heights.
Mér finnst líka sérstakt hérna hvað borgarstjórinn, Michael Bloomberg, og áður Rudy Giuliani, eru sýnilegir í borginni. Það má ekkert koma upp á og þá er borgarstjórinn orðinn innviklaður í málið og kemur með yfirlýsingar um ástandið. Það er eitthvað svo mikil persónudýrkun í gangi hér, kannski vegna þess hvað einstaklingar í valdastöðum, eins og forsetinn, fylksstjórar og borgarstjórar hafa mikil völd.
Ég var að skríða heim úr partíinu hjá Adelene og sit við tölvuna og drekk vatn í þeirri von um að vinnan á labbinu verði bærilegri á morgun ef ég bara kem niður smá hátveiro.
Það er svo fyndið hvað það er öðruvísi að fara í partí hér en heima. Á föstudaginn voru miklar samræður um hvað það yrði GEÐVEIKT partý í kvöld og svo voru sagðar drykkjusögur og fólk kepptist við að metast um hver væri mesta fyllibyttan. Partíið í kvöld byrjaði klukkan sjö á því að við mættum nokkur með mat og nörtuðum. Adelen bauð upp á sangria, og svo tók liðið, sem hafði verið í fyllibyttukeppninni daginn áður, upp Bud light og svolgraði í sig. Klukkan eitt voru svo allir farnir heim að sofa.
Ekki misskilja mig, mér finnst ekkert að því að drekka Bud light (ef manni finnst hann góður), og byrja partíin snemma og fara snemma heim. Þetta er bara svo allt annað en maður á að venjast frá vorri ástkæru fósturjörð, þar sem allir mæta klukkan tíu og keppast við að hella oní sig eins miklu áfengi og mögulegt er, áður en út á djammið er haldið. Hér þekkjast heldur varla partí sem standa þar til undir morgun.
Æji, mér finnst þetta bara fínt. Að vera komin snemma heim og kúra og vera svo til í slaginn snemma á morgun.