Úje... Ég synti sko þúsund metra skrið og stoppaði bara þrisvar! Mér fer fram á hverjum degi...
Ég rakst á þessa grein á netinu. Ég er nokkuð sammála henni, þetta tips-kerfi hérna er alveg svakalega ógegnsætt. Ég veit aldrei hvað ég á að tipsa mikið, þannig að ég tipsa bara alltaf 20%. Mjög margir tipsa alltaf 15% af því að það er svo auðvelt að reikna það út, tvöfaldur söluskatturinn.
Mér finnst líka alveg óþolandi að þurfa að gefa þjórfé á hárgreiðslustofu. Ég veit sko aldrei hvað ég á að tipsa mikið þar. Mér finnst líka svo halló að henda einhverjum skitnum dollarableðlum í hárþvottarkonuna. Mér finnst bara að þetta fólk eigi að vera á mannsæmandi launum, punktur. En þeir sem þvo á manni hárið heima á stofunum eru allt nemar á einhverjum skítalaunum, með þrjúhundruðkall á tímann. Hér er því ekki fyrir að fara af því að fólk getur næstumþví fengið sveinspróf í hárgreiðslu í bréfaskóla.... En það er allt önnur saga....
Oh.. ég nenni ekki í sund. Mér finnst eiginlega jafnleiðinlegt að synda og það er gaman að hlaupa. Ég er orðin svo hlaupasvelt að ég gæti best trúað því að fæturnir á mér hlaupi af stað fljótlega án þess að spurja mig áður...
Málið með hlaupin eru að þau taka svo mikið betur á heldur en sundið. A.m.k. fyrir mig, þar sem ég þarf enn að hvíla mig í hálfa mínútu eftir hverja hundrað metra sem ég syndi skriðsund, svona bara til að drukna ekki. Ef ég verð of móð þá tapa ég niður taktinum.
Ég vildi að ég gæti hlustað á tónlist á meðan ég syndi....
Það er 21°C hiti úti núna og ég er komin í gallabuxur í fyrsta skiptið í margar vikur! Ég held að það segi mest um hvað það er búið að vera heitt hér undanfarið. Íslendingurinn í mér fer samt hjá sér þegar ég uppgötva að mér finnst vera pínu kalt í tuttugu gráðu hita.
Eins og mér finnst æðislegt þegar það er heitt úti eins og er búið að vera undanfarið, þá er þetta "kuldakast" í dag mjög heppilegt, því það verður engin loftkæling í Fairchild, líffræðibyggingunni, fram að hádegi.