Hahaha... mér finnst frekar fyndið að fatsóarnir hérna í Ameríku séu að fara í mál við Burger King, McDonalds og félaga, til þess að gera þessar skyndibitakeðjur ábyrgar fyrir offituvandamáli ákærenda.
Mér finnst þetta stórkostlegt. Hversu heimskur er hægt að vera? Mér finnst þetta líka bara fyndið og verð ekkert pirruð yfir þessu eins og þessi, fyrr en fatsóarnir vinna málið.
Ekki slæmt að vera hætt á Blogger núna þegar allt er í klessu á Blogspot =)
Ágúst og Stefán skrifast á af miklum móð um styttingu vinnuvikunnar. Ég er sammála Stefáni um það að stytting vinnuvikunnar á ekki eftir að setja fyrirtæki á hausinn. Hins vegar veldur hún starfsfólki meira stressi, því það þarf að komast yfir sömu vinnu og áður á styttri tíma. Það er að minnsta kosti reynslan í Danmörku, þar sem búið er að stytta vinnuvikuna niður í 37 tíma (að mig minnir). Þar kvartaði fólk oft yfir því og margir hefðu alveg verið til í að vera lengur í vinnunni til þess að geta unnið á eðlilegu tempói, og kannski stundum fengið sér kaffibolla með vinnufélögunum.
Það er líka athyglisvert að sjá hvað umræðan um verkalýðsmál er á allt öðru plani hér í BNA. Það dytti engum í hug að tala um að stytta vinnuvikuna niður í 35 tíma á viku, enda vinna Bandaríkjamenn mjög mikið. Þessa dagana snýst umræðan meira um s.k. 401(k) sjóði sem eru einskonar eftirlaunasjóðir, og "stock options" starfsmanna. Þessi umræði fylgir þó í kjölfar bókhaldsskandala undanfarinna mánuða.