Sunnudagur, 28 júlí, 2002
Kajakferð

Við fórum með Adelene í dag niður á Pier 26 á Downtown Boat House, þar sem við fórum á kajak. Downtown Boat House er áhugamannaklúbbur um kajaksiglingar og það kostar ekkert að prófa að fara á kajak þar, en maður verður að halda sig við bryggjuna og maður má bara vera hálftíma í einu. Í dag var stefnan bara að tékka á staðnum og sjá hvað klúbburinn hefði uppá að bjóða. Við skrifuðum uppá að við kynnum að synda og fórum í björgunarvesti og fengum svo báta. Ég og Mörður tvímenntum í einn bát og Adelene fékk bát út af fyrir sig. Það kom okkur pínu á óvart að það voru engar svuntur á bátunum, þannig að við rennblotnuðum á rassinum, en það kom þó ekki að sök í hitanum. Við rérum um höfnina og nutum þess að finna öldurnar rugga okkur. Við vorum þó ekki búin að vera nema korter úti þegar allir voru kallaðir í land aftur vegna þess að það var neyðarútkall í gangi hjá lögreglunni, en löggan vildi ekki hafa neitt fólk úti á ánni.

Við bárum bátana á land og sáum þar hvar sjö lögreglubílar brunuðu framhjá. Þegar við röltum svo til baka sáum við að allir löggubílarnir voru við næstu bryggju, og það voru svona þrjátíu löggur þar við líka. Ég spurði mann í sölutjaldi hvað væri í gangi og hann upplýsti mig af því að það hefði fundist gashylki við bryggjuna. Þarna voru líka óeinkennisklæddar löggur með ýstru í röndóttum skyrtum og "flottustu" speglasólgleraugu sem unnt er að ímynda sér. Ef þeir hefðu ekki verið í útkalli hefðu þeir pottþétt haldið á dónött og kaffi í frauðplastsbolla.

Mér er líka bara spurn, hvers vegna þarf þrjátíu löggur til þess að sjá um eitt gashylki? Mér finnst líka nóg um hvað fólk er nojað hér þessa dagana.

Fyrst við vorum komin niður í bæ röltum við með blauta rassana um SoHo og Chinatown og fengum okkur svo núðlur á malasískum stað. Þannig að þó að kajakróðurinn hafi verið skammvinnari en við héldum var eftirmiðdagurinn alveg hreint prýðilegur.

Þegar Adelene kemur heim úr fríinu sínu á Spáni ætlum við svo að fara saman í tveggja tíma kajakferð einhvern seinnipartinn, og jafnvel vinna upp kjark til þess að fara í dagsferð.

Posted by erna at 09:34 EH
Silungur með bláberjasósu

Gærdagurinn var frábær! Ég vaknaði snemma og las nokkrar vísindagreinar í morgunsárið og skellti mér svo í sund. Þegar ég kom svo heim aftur var Mörður kominn á fætur og við drifum okkur og tókum til og fórum svo að kaupa í matinn, því við buðum Josh og Melissu í mat í gærkvöld.

Eins og venjulega vorum við á síðustu stundu með veisluundirbúning, þannig að nágrannar okkar voru komin þegar við vorum rétt búin að verka fiskinn. Það kom þó ekki að sök, því við spjölluðum bara við þau á meðan við stóðum yfir pottunum. Það eru nefnilega jákvæðar hliðar á því að vera með eldhúsið (eða eldhúslinginn eins og frekar ætti að kalla það, vegna smæðar), inni í stofu.

Mörður ákvað að hafa silunginn sem hann veiddi fyrir norðan í forrétt. Hann var matreiddur að hætti hússins (og tengdapabba), smjörsteiktur með rjóma-bláberjasósu. Í aðalrétt var svo Ýsa elegant, sem aldrei klikkar og í eftirrétt var súkkulaði kaka frá Nussbaum and Wu, sem er beyglustaður og bakarí hér úti á horni.

Það er alltaf svo gaman að spjalla við Josh og Melissu. Við stelpurnar ákváðum að fara saman í Ayangar-jóga tíma í haust, og strákarnir töluðu saman um veiði. Áður en varði var Josh líka farinn að fræða okkur um stjórnmálakerfi Bandaríkjanna, en hann veit svo margt um það og sögu þess, og það er svo gaman að hlusta á hann. Við borðuðum og spjölluðum langt framyfir miðnætti, en Josh og Melissa fóru geispandi heim og við skriðum í háttinn.

Núna sit ég hins vegar bara og blogga, því að Mörður gekk frá matnum og skolaði leirtauið í nótt og ég lofaði að ég myndi vaska það upp í dag. Og nú nenni ég því að sjálfsögðu ekki =)

Posted by erna at 01:37 EH