Bjarni talar um frétt á mbl.is í dag þar sem greint er frá því að vísindamenn hafi sýnt fram á að atlot ástvina framkalli öðruvísi taugaboð en snerting af öðru tagi.
Eins og venjulega er frétt Moggans hrá og frekar léleg þýðing á efni sem finna má annars staðar á vefnum á betra og ýtarlegra formi. Þessa umræddu frétt er að finna á heimasíðu vísindatímaritsins Nature, á s.k. Nature Science Update síðu, en það er mjög sniðug siða þar sem það nýjasta í vísindaheiminum er sett fram á fréttaformi og alveg tilvalið aflestrar fyrir áhugasama leikmenn. Ég er áskrifandi að þessum fréttum í tölvupósti og finnst þetta alger snilld!
Júhú! Við fengum digital-myndavél um daginn sem er líka hægt að nota sem Web-cam! Þessi myndavél var líka mjög ódýr, því við fengum hana senda ókeypis sem kynningartilboð. Tjáh, stundum margborgarsig að búa í Ameríku =)
Reyndar er þetta ekkert kostuleg vél, því myndgæðin bera þess alveg merki að hún er ókeypis. Ég held samt að ég fái mér digital vél fljótlega, því að það á að vera svo auðvelt að fá fínar, ódýrar vélar á Íbey. Að minnsta kosti keyptu Kiddi og Inga vél þar á 100 dollara sem væri alveg fullkomin fyrir okkar not!
Úff, það er búið að vera frekar kalt í borginni undanfarið, og svo loksins þegar manni er hætt að finnast kalt í tuttugu stiga hita, þá kemur hitabylgja. Í augnablikinu er 37°C hiti og rakaprósentan er um fimmtíu prósent! Urr....