Þriðjudagur, 6 ágúst, 2002
Góð helgi...

Ég er sko fegin að hafa ekki verið á Íslandi um helgina! Þvílíkar sögur af leiðindaveðri hef ég ekki heyrt í lengri tíma. Ég verð nú samt að játa það að þegar Mörður sagði að tengdapabbi hefið sagt að veðrið væri þannig að hann langaði mest að skríða undir teppi, þá fékk ég smá heimþrá... Ég var nefnilega að grillast úr hita akkúrat þá stundina, og mér finnst alltaf pínu gaman í smá slagviðri. Annað hvort úti að hjóla eða inni undir teppi með ostabrauð og kakómalt!

Við fórum í dúndurpartí hjá Sigga á laugardaginn. Það var brjálað tjútt. Við byrjuðum partíið uppi á þaki á byggingunni hans og nutum útsýnisins og veðursins. Svo fórum við niður aftur og fengum þennan líka fína Víetnamska mat. Tjúttið stóð svo frameftir allri nóttu og þynnkan á sunnudaginn var í réttu hlutfalli við það. Ég mætti ekkert á labbið fyrr en klukkan sjö, þá var ég svona að skríða saman....

Ég keypti mér stórfína bók á sunnudaginn. Hún einhvern vegin kallaði á mig úr hillunni á Barnes and Nobles, og þar sem ég stóð og var að lesa aftan á hana, skellti Mörður upp úr og sagði: "Swimming; viðeigandi bók fyrir þig núna!" Þá fyrst tók ég eftir titlinum, og bara varð að kaupa bókina. Ég er fegin að bókin er góð, því nú hef ég eitthvað skemmtilegt til að tengja orðið swimmning við....

Posted by erna at 09:56 FH