Ég er loksins búin með Swimming, eftir Johönnu Hersohn, þannig að ég get farið að blogga aftur. Þetta er svona bók sem maður límist alveg yfir. Fjallar um vofeiflega atburði, og ungri konu í leit að sannleika... Það skemmdi heldur ekki fyrir að bókin gerist að miklu á Manhattan, þannig að ég sá allt umhverfið vel fyrir mér!
Annars er nokkuð tíðindalaust hér vestanhafs. Labbvinnan gengur svona upp og ofan. Ég er enn að gera svona byrjendamistök ansi reglulega, sem tefur alltaf fyrir vinnunni. Í þetta skiptið var það að rækta bakteríur í allt of litlum flöskum, þannig að þær uxu ekkert veslingarnir =( Leiðbeinandin minn, póstdokk á labbinu, var heldur ekkert hress með það, en hún er eina manneskjan sem ég gersamlega umber ekki á labbinu. Sem betur fer er hún að hætta í haust og flytja úr landi, annars myndi ég ekki einu sinni íhuga að gera doktorsverkefnið mitt á þessu labbi. Urrr....