Fimmtudagur, 8 ágúst, 2002
Home alone...

Ég er ein heima núna, því að Mörður er á íslendingabjórkvöldi. Ég er nefnilega að fara í sjúkraþjálfun í fyrramálið klukkan hálfátta og svo á mikilvægan fund með prófessornum mínum, eftir það tekur svo við heill vinnudagur, þannig að ég má engan veginn við því að vera þunn á morgun. Ég væri nú alveg til í að vera á Símabarnum núna, það er svo skemmtilegt fólk þar alltaf annan fimmtudag hvers mánaðar! En æji, ég verð hress á því á morgun í staðinn...

Ég gerði heiðarlega tilraun til þess að komast í klippingu í fyrradag, en allt kom fyrir ekki, ég missti af tímanum mínum vegna óvæntra aðstæðna sem komu upp á labbinu. Ég er farin að líkjast míkrófón núna, hárið á mér stendur svo út í loftið. Ég hef verið að spá í hvort að ég ætti kannski að safna, en ég held ekki. Mér finnst kúlara að vera með stutt. Á mér allavegana. Ég hugsa samt að ef ég fæ ekki almennilega klippingu á Dramatics, þá safni ég...

Posted by erna at 11:12 EH