Föstudagur, 9 ágúst, 2002
Þramm

Dagurinn í dag er búin að vera alveg skínandi góður! Ég er reyndar pínu syfjuð af því að ég þurfti að taka subway í sjúkraþjálfun klukkan rúmlega sjö. en það er nú í lagi svona einu sinni. Sérstaklega af því að í dag þarf ég lítið að vinna, bara að bíða eftir því að bakteríurnar mínar fjölgi sér.

Ég fór í sjúkraþjálfun eins og áður sagði, og Libbý var bara býsna ánægð með mig. Ég má jafnvel fara að hlaupa aftur fljótlega, en í gær var fyrsti dagurinn í sjö vikur þar sem mér var ekki illt í bakinu, og það er víst orðið alveg beint.

Svo fór ég á fund með prófessornum mínum, og hún var bara býsna ánægð með það sem ég var að gera, og hafði meira segja fyrir því að dást að því hvað gelin mín væru falleg =) Fyrir mér eru gel bara gel, en það á kannski eftir að breytast! Það er allavegana gaman að fá hrós, þó að það sé bara fyrir útlitið á Coomassie-lituðum próteingelum.

Svo lenti ég í brjáluðu þrammi á campusnum. Ég skal sko bara segja ykkur það að þeir sem eru pirraðir á nemendaskrá HÍ hafa sko ekkert prófað enn! Ég þurfti nefnilega að endurnýja áskriftina á skápnum sem ég er með í gymminu. Þegar ég kom á skrifstofuna þar var mér sagt að ég þyrfti að vera með límmiða á Columbia skilríkinu mínu þar sem stæði að ég væri skráð í Columbia í haust. Ég þrammaði því yfir í nemendaskrá, þar sem þær kíkja venjulega á skráninguna manns í tölvunni og líma svona límmiða á. Í leiðinni ákvað ég að fara með social-security kortið mitt til þeirra, en ég er búin að trassa það í allan vetur. Það gerði ekkert nema flækja málin, því að fyrst að ég er komin með rétta kennitölu, þá þurfti ég að fá nýtt kort og því gamla hent, með öllum mínum nauðsynlegu limmiðum. Svo komst ég líka að því að deildin mín er ekki búin að skrá mig á haustmisserið, þannig að ég gat ekki endurnýjað skápinn minn. Justin, sem sér um skráningarnar, er nefnilega í fríi. Til þess að bæta gráu ofan á svart, þá komst ég ekki í sund, því það var brjáluð röð í gymminu þar sem ég gat fengið aftur límmiðann fyrir sumarið. Þar að auki þarf ég að fara inn á öryggisskrifstofuna í dag og standa í biðröð til þess að virkja aðganginn inn í líffræðibygginguna. Sem betur fer er lítið að gera hjá mér í dag og veðrið með eindæmum gott, þannig að allt þetta þramm var bara hressandi og frekar fyndið.

Posted by erna at 02:31 EH