Sunnudagur, 11 ágúst, 2002
Árangurinn...

Jæja, þá er klippingin afstaðin, þið getið sjálf dæmt hvernig fór....


Mikið finnst mér leiðinlegt hérna hvað menn láta ekki segjast og halda áfram að nauða í mér þegar ég segist ekki vilja lita á mér hárið. Gaurinn var næstumþví byrjaður að tala um hvað hárið á mér væri ljótt á litinn, bara til þess að selja mér hárlitun. Ég er samt ágætlega sátt. Ekkert svakalega. Það er örugglega langt, langt, langt þangað til ég fæ góða klippingu...

Posted by erna at 01:34 EH
Sálarstríð

Þetta er nú pínu skondið! Stebbi Hilmars brjálaður og allir í slag...

Posted by erna at 11:23 FH
Klipping, labbfundur og óhreinindi.

Ég er að fara í klippingu í hádeginu =) Ég hlakka bæði til og kvíði fyrir, því að það er ansi tvísýnt um útkomuna.

Labbvinna gærdagsins gekk vægast sagt mjög vel. Bakteríurnar mínar uxu eins og gorkúlur og ég var búin að vinna fyrir kvöldmat. Undanfarna daga hafa þær nefnilega vaxið svo hægt af því að loftkælingin í húsinu hefur haldið hitastiginu mjög lágu. Ég hélt því jafnvel að ég yrði að vinna fram á nótt.

Í dag ætla ég svo að útbúa glærur fyrir fyrirlesturinn sem ég held á morgun á labbfundi, um það sem ég er búin að vera að gera í sumar, og æfa mig nokkrum sinnum á Merði. Ég held að hann hlakki ekki til =)

Annars er ég orðin pínu þreytt á því að vera alla daga í vinnunni. Íbúðin okkar er orðin svo skítug að það er varla verandi hér, en ég hef ekki haft tíma til að þrífa hana undanfarið, og svo hafa bakverkir líka komið í veg fyrir að ég hafi náð að taka til hendinni heima hjá mér. Núna er bakið á mér hins vegar í góðu geimi og næsta helgi lofar góðu með það að ég nái nú eitthvað að snurfusa hérna. Jeijjj!!!

Posted by erna at 10:20 FH
Flugleiðir

Ég segi ekki annað en; Dæmigert fyrir skítaapparatið Flugleiðir... Og svo eru menn með ekkert nema lélegar afsakanir í kjölfarið. Ég bíð eftir að þeir fari á hausin, þetta er svo illa rekið fyrirtæki. Helsta tekjulind þeirra er okur á íslenskum stúdentum sem búa í útlöndum. Þetta fyrirtæki virkar ekki hvetjandi á að maður fari heim í frí...

Posted by erna at 09:00 FH