Labbfundurinn fór alveg ágætlega í dag. Ég var samt frekar stressuð, þannig að ég gat ekki alveg svarað öllum spurningunum sem ég fékk, þó ég vissi alveg svarið, var ekki alveg nógu örugg. En það kemur, ég hef fimm ár í viðbót til þess að vinna í því!
Annars fór seinniparturinn í að rölta út á alþjóðaskrifstofu og sækja skjöl til þess að fara með á launaskrifstofu deildarinnar. Þetta var samtals klukkutímalabb í steikjandi hita... úff! Ég sá alveg skafrenning og snjóskafla í hillingum. Það er búið að vera svo passlega heitt hérna undanfarnar þrjár vikur, tuttugu og fimm til þrjátíu gráður og ekkert svakalega rakt, en þessa vikuna er sannkölluð hitabylgja í New York.
Í kvöld var svo journal club, með bjór og snakki, en núna er ég örmagna heima hjá mér að borða súkkulaði og búa mig undir próteinhreinsun morgundagsins.