Miðvikudagur, 14 ágúst, 2002
Kvikmynd

Ég gleymdi alveg að segja frá því að á næsta labbi við labbið mitt var verið að taka upp kvikmynd í gær. Gangurinn fyrir framan rannsóknarstofurnar var fullur af fólki allan daginn, sem bara stóð og spjallaði saman og sagði "We're rolling" og "Shhhhh..." annað slagið. Chloe Bulinski, prófessorinn á næsta labbi, og póstdokk á labbinu voru settar í fyndna þrönga hvíta sloppa og voru látnar pípettera á fullu. Það er frekar fyndið, en það er aldrei neinn í sloppum hérna, nema þegar fólk er að vinna með geislavirkni og svo þegar fólk leikur í bíómuyndum.

Hún Jóhanna rétt missti sumsagt af því að verða kvikmyndastjarna, en þetta er labbið hennar, en Jóhanna er í sumarfríi í Evrópu. En allavegana, myndin kemur til með að heita Corn, og mér skilst að þetta sé hrollvekja af einhverju tagi.

Posted by erna at 10:34 EH
Gleði

Það telst ekki góður íþróttaandi að gleðjast yfir óförum annarra. En fjandinn hafi það, Man. Utd tapaði í kvöld og mér finnst það hrikalega skemmtilegt.

Posted by mordur at 10:07 EH