Jæja, nú er ég loksins komin heim af labbinu og sé fram á það að þurfa ekki að verja meira en klukkutíma þar á morgun. Hjúkk. Þessi vika er búin að taka á, bæði andlega og líkamlega. Gærdagurinn var sko ekkert stuttur, var ekki komin heim fyrr en klukkan tíu. Hafði samt tíma fyrir nokkra bjóra með Merði. - Þó það nú væri, maður verður nú að halda föstudagana hátíðlega með smá áfengisskvettu!
Góðu fréttirnar eru að ég er búin að hreinsa tvö prótín af þremur. Þær slæmu eru að Vanesa verður þokkalega pirruð þegar hún kemst að því að ég hreinsaði ekki þriðja próteinið í vikunni. Mikið hlakka ég til þegar hún flytur heim til sín.
Kann einhver lesandi ráð til þess að prótín losni af súlu í skörpum toppi, í stað þess að það sé svaka hali á eftir toppinum? Ég er sko að nota histdine-tag og nikkel-perlur. -Nei, ég bara svona spyr! Kvöldinu verður varið í að lesa Harris og Angal: Protein purification, á meðan Mörður fer í partý.