Ég sá á RSS yfirlitinu á síðunni að Ágúst Flygenring hefði skrifað færslu með titlinum Pönnsur. Vitandi það að hann vinnur með mömmu, þá hugsaði ég með mér að þarna væri örugglega um að ræða pönnsurnar hennar mömmu minnar! Júh, mikið rétt, það stóð heima, mamma mætti með nýbakaðar pönnukökur í vinnuna í morgun. Mikið held ég að vinnufélagar hennar séu ánægðir í dag. Ég veit heldur ekki um neina aðra konu sem mætir með nýbakaðar pönnsur í vinnuna. Hvílíkur myndarskapur! Oh... ég væri nú alveg til í svosem eins og eina....