Föstudagur, 23 ágúst, 2002
Kennsla

Ég er komin með verkefni fyrir næstu önn. Málið er að ég hef ákveðna kennsluskyldu í náminu. Ég þarf að taka þrjár kennslueiningar, en það jafngildir því að vera með umræðutíma í tveimur kúrsum samtals, eða fara yfir próf í þremur kúrsum. Ég er mjög fegin að þetta skuli ekki vera meira, því doktorsnemar í mjög mörgum öðrum fögum, þó sérstaklega hugvísindum, þurfa að kenna á hverju einasta misseri í fimm ár. Ég fékk hins vegar alveg svakalega fínt kennsludjobb fyrir þetta misseri. Ég verð svokallaður Head-TA, en TA stendur fyrir Teacher Assistant. Vinnan felst í því að raða fólki niður í umræðutíma og slá inn einkunnir hjá nemendunum úr prófum misserisins, en þau eru fjögur samtals, og nemendurnir eru um þrjúhundruð. Ég mun líka sjá um viðhald á vef námskeiðsins. Mér heyrist á þeim sem hafa gert þetta áður að þetta sé ekki mikið mál miðað við að sitja heila helgi fjórum sinnum á misseri og fara yfir misgáfuleg svör nemenda við sömu spurningunni. Mér finnst líka ágætt að fá að spreyta mig aðeins frekar á viðhaldi á vefsíðum, þannig að ég er eiginlega að slá tvær flugur í einu höggi, læri meira í vefsíðugerð og vinn mér inn kennslupunkta í sömu andrá.

Posted by erna at 07:54 EH