Mánudagur, 26 ágúst, 2002
Bóksala Stúdenta

Ágúst skrifar um námsbók sem hann keypti í Bóksölu stúdenta og finnst merkilegt að bók sem kostar hundrað dollara í Ameríku kosti um fimmþúsund í Bóksölunni. Mér finnst það líka merkilegt.

Málið er að Bóksalan stundar svokallaða verðjöfnunarstefnu. Tilgangurinn er að jafna útgjöld milli faga þannig að nemendur borgi allir svipað verð fyrir bókakost sinn, sama um hvaða bækur er að ræða. Þannig kostar tíu ára bók um prótínhreinsun jafnmikið og nýjasta útgáfan af efnagreiningarbókinni. Fyrri bókin kostar um tuttugu dollara á Amazon, hin um hundrað og tuttugu. Þessi hugsjón er jú mjög falleg og vel meint, en lengra nær það ekki.

Bóksalan hefur löngum stært sig af því að vera ódýrari en Amazon, og að hluta til er það rétt, því dýru stóru bækurnar eru mun ódýrari, en sömu er ekki að segja um litlu ódýru bækurnar. Þess vegna er hagstæðast fyrir stúdenta að kaupa ódýrubækurnar á Amazon, þar sem þær eru en ódýrar, og dýru bækurnar í Bóksölunni, þar sem þær eru ekki svo dýrar.

Posted by erna at 09:07 FH