Miðvikudagur, 28 ágúst, 2002
Annað árið

Það var fremur afslappaður dagur hjá mér á labbinu í dag. Ég svaf til tíu og mætti ekki fyrr en ellefu á labbið. Ég tók líka heilan klukkutíma í hádegismat, því að í dag var fyrsti dagurinn hjá nýju fyrtsta-árs nemendunum, og í tilefni af því var öllum boðið upp á samlokur í hádeginu, sem svona "welcome-lunch" fyrir þau. Í dag er ég semsagt opinberlega orðin annars-árs nemi. Úff... því fylgir nú pínu pressa, því honnímúnið er búið og nú tekur blákaldur veruleikinn við.

Klukkan sex sló ég þessu svo öllu upp í kæruleysi, hætti að vinna og dreif mig með Melissu að hitta krakkana á West End, en þar voru nýbakaðir fyrsta annars og þriðja-árs nemar á happy hour. Við sötruðum smá bjór og fórum svo á uppáhalds veitingastaðinn minn í hverfinu, TOMO, og fengum okkur sússí. Nammi, nammi, namm. Ég er loksins búin að eignast uppáhaldsmat, en hingað til hef ég aldrei getað gert upp á milli góðra rétta.

Nú er ég hins vegar andvaka, því að ég vaknaði ekki fyrr en tíu í morgun og sólarhringurinn snýr því eitthvað öfugt hjá mér.... Mér finnst þetta samt algert æði. Ég er loksins búin að finna taktinn, farin að njóta þess að ég er ekki í venjulegri vinnu og farin að njóta frelsisins til þess að vinna þegar mig langar til þess að vinna. Nú er mig loksins farið að klæja í puttana að mæta aftur á labbið og halda áfram með verkefnið mitt, sama hvað klukkan er og finnast svaka gaman að lesa greinar um verkefnið mitt. Þetta hefur sennilega allt að gera með það að ég verð næstu árin á þessu labbi að vinna doktorsverkefni. Ég er komin yfir smáverkefnasyndrómið sem fylgir þessum rótasjónum, og yfir í hina fúlustu alvöru.... =)

Posted by erna at 11:01 EH
Jibbí kóla!

Jeijjj... Ég var að koma heim af labbinu og ég er í skýjunum! Öll Western blottin mín virkuðu, og öll prótínin mín eru það sem þau eiga að vera.. júhúúúú....

Svona vinna frameftir veldur því hinsvegar að ég hitti Mörð frekar lítið. Hann kyssti mig bless þegar hann fór í morgun, svo hitti ég hann í dyrunum heima þegar ég var að fara aftur á labbið eftir kvöldmat og svo hringdi ég í hann til þess að segja góða nótt... Þvílík eiginkona.

Posted by erna at 12:13 FH