Í dag er góður dagur. Ég var mætt fyrir allar aldir í sjúkraþjálfun, þar sem ég var nudduð í spað, (ái, það var svo vont), ég fékk meira að segja svona raflostsmeðferð.. heheh.. eða hvað það er nú kallað, elektróðurnar voru allavegana settar á bakið á mér en ekki hausinn...
Svo dreif ég mig á labbið og þar gekk allt alveg hreint skínandi, ljómandi vel! Ég gerði mína fyrstu mótefnafellingu, sem gekk upp... þannig að núna veit ég að prótínin sem ég var að klóna, tjá og hreinsa eru það sem þau eiga að vera og virka eins og þau eiga að virka.
Marshall og Melissa komust að því að ég var með geisladiskaveskið mitt með mér og skemmtu sér við að fletta í gegnum það. Þegar það kom að XXX-Rottweiler hundum, stóðust þau ekki mátið, þegar ég sagði þeim að þetta væri íslensk rapphljómsveit: "Do they rap in Icelandic?" Og diskurinn flaug á. Þeim fannst þetta ótrúlega fyndið, og sérstaklega þegar ég sagði þeim líka frá því að Erpur hefði kastað mólótof kokkteil á sendiráð BNA heima í fyrra...
Núna er ég bara að fara að kíkja á The Hungarian Pastry Shop með Noeliu og fá mér kaffi.
Oh... ég gleymi alltaf að segja frá því að það hefur bæst einn Íslendingur í hópinn hér í Columbia. Það er hún Binna, en hún er að fara að stúdera bókmenntir við enskudeildina hér. Hún er búin að kíkja nokkrum sinnum í heimsókn, og við gersamlega stoppum ekki í masinu þegar hún kemur... Um helgina förum við samt til hennar í heimsókn, því að hún á afmæli á laugardaginn og bauð okkur í mat. Kíkið endilega á bloggið hennar Binnu á karamella.blogspot.com