Þriðjudagur, 10 september, 2002
Ljúfur labbfundur

Ég var að koma heim frá Cold Spring Harbor fyrir nokkrum tímum síðan. Þangað fór ég í gær ásamt félögunum á labbanum, á svokallaðan "joint lab meeting", eða sameginlegan labbfund hjá nokkrum p53 löbbum á New York svæðinu 1, 2, 3, 4, 5.

Ég er sumsagt búin að sitja í tvo daga samfleytt og sötra kaffi og hlusta á fyrirlestra fólks sem er að rannsaka p53 og hluti tengda því próteini. Nema reyndar í gærkvöld, því þá sötraði ég rauðvín og bjór og spjallaði um rannsóknir við fólk. Þetta var alveg svakalega gaman. Það var svo mikið af færu fólki samankomið þarna og svo mótíverandi og lærdómsríkt að hlusta á uppástungur þeirra sem eru með reynslu á þessu sviði.

Staðsetningin var líka alveg frábær, Cold Spring Harbor er fræg rannsóknarstöð í líffræði. en þar unnu einmitt Watson og Crick þegar þeir uppgötvuðu byggingu DNA. Watson er ennþá prófessor þar. En allavegana, þá var fundurinn í svokallaðri Banbury conference center, þar sem við höfðum útsýni yfir vatnið sem Cold Spring Harbor liggur við, og húsin þarna eru gömul timburhús dreifð á milli trjáa á stóru svæði. Fundarsalurinn sjálfur er í húsi sem áður var bílskúr, og maður sér alveg fyrir sér svona eldgamaldags ford í bílastæðinu. Þegar hugurinn reikaði aðeins við fyrirlestranna og manni varð litið út um gluggan, mátt sjá íkorna skoppandi fram og til baka og flugur og fiðrildi fljúgandi um.

En nú blasir blákaldur veruleikinn við á ný! Ég er búin að fara á labbið og gefa frumunum mínum að borða og líka búin að sinna kennsluskyldunni (þ.e. að svara ímeilum frá fólki sem vill skipta um dæmatíma), þannig að það er kominn háttatími...

Posted by erna at 01:27 FH
Tölvupóstleysi

Jæja, kominn tími á annað blogg. Ég ætti kannski líka að taka það fram að ef einhver er orðinn fúll út í mig fyrir að senda ekki tölvupóst, þá veit ég upp á mig sökina. Ég hef varla sent tölvupóst í tvær vikur, hreinlega vegna þess að ég hef venjulega ekki orku seint á kvöldin þegar ég kem heim af labbinu eða úr sundi... En þetta stendur allt til bóta og enginn þarf að vera móðgaður af því að þetta er ekkert persónulegt!!!

Posted by erna at 12:47 FH