Úff... þetta var þokkalega langur vinnudagur. En hann var skemmtilegur. Toppurinn var fyrilesturinn sem ég fór á í hádeginu, en Jerry Hurwitz hélt fyrilestur um DNA eftirmyndun. Kúl stöff.
Í dag var líka fyrsti gymmdagurinn í fjóra mánuði, en ég fékk að fara að lyfta. Það þarf varla að segja frá því að það var geðveikt stuð, jafnvel þó ég megi ekki lyfta sömu þyngdum og áður. Það kemur allt með kalda vatninu. Ég setti líka persónulegt skriðsundsmet í gær og skriðsynti þúsund metrana á tuttugu og þremur mínútum. Júhú!
Ég vil líka endilega biðja lesendur um að krossa fingurna fyrir mig og senda mér góða strauma svona upp úr hádegi og fram til fjögur á morgun, en þá verð ég einmitt að losa prótínið mitt af súlunni.