Sunnudagur, 17 nóvember, 2002
Helgin

Úff, þá er ég komin heim eftir erfiða en skemmtilega helgi. Ég er vægast sagt dauðþreytt eftir líffræðifyrirlestra og skemmtanir helgarinnar.

Við vorum komin upp í Arden House seinnipartinn á föstudaginn. Þetta hús er gamalt ættaróðal sem nú er í eigu Columbia. Við röltum um húsið fyrst eftir að við komum, og það má segja að það sé hið mesta völundarhús, með göngum sem liggja ekki að neinu og hurðum sem opnast að engu. Og ekki má gleyma dimma turninum, í stiga hans voru kóngulóavefir og mygla, en efst var læst hurð og þaðan kom dauft ljós undan þröskuldinum. Ég er sannfærð um að hinn rétti eigandi hússins hefur verið læstur þarna inni undanfarin fimmtíu ár...

Við borðuðum þríréttaðan kvöldmat og svo hófst ráðstefnan og stóð langt frameftir kvöldi, en eftir það byrjaði fjörið, með opnum bar og stuðtónlist. Það var semsagt frekar erfitt að vakna í morgunmat og fleiri fyrirlestra klukkan hálfátta á laugardagsmorguninn.

Seinnipartur laugardagsins (eftir aðra þríréttaða máltíð) var frítími og við fórum nokkur saman í göngutúr í skóginum, það var þoka og rigning og alveg lygnt, og við óðum haustlaufin í ökla. Flestum fannst reyndar of kalt nema mér og Adelene, en það er ekki alveg að marka, Vasoo er til dæmis indverji og henni finnst kalt um leið og hitinn fer niður fyrir 20°C.

Eftir kvöldmat var svo sama dagskrá og á föstudag, fyrirlestrar og svo partí. Sumir bekkjarfélagar mínir fóru reyndar út í skóg að leita að sasquatch, eða Big Foot eins og sumir kalla hann. En að þeirra sögn var svo mikil rigning að meira að segja sasquatch var heima hjá sér, þannig að ekki hittu þau félagann.

Það urðu líka smá skandalar varðandi prófessor í deildinni "uptown" sem var gestafyrirlesari hjá okkur. Hann er greinilega að fást við einhvers konar "mid life crisis" kallgarmurinn. Ætli prófessorum verði kannski bannað að mæta næst vegna skandala?

Það var, eins og gefur að skilja, enn erfiðara að vakna í gærmorgun í fyrirlestra og morgunmat, en ég hafði það samt af. Seinnipartinn í gær var svo brunað í bæinn, en það var ólíkt hljóðlátara í rútunni á leiðinni heim heldur en á leiðinni uppeftir á föstudaginn. Ég verð örugglega alla vikuna að ná mér eftir ósköpin....

Posted by erna at 06:35 EH